Fara beint í efni

Spurningar

Hvernig virka stafrænu vörurnar?

Þú velur stafrænt veggspjald eða tækifæriskort og gengur frá greiðslu. PDF-skjalið kemur strax í tölvupósti og þú prentar það í þínum prentara eða lætur prenta það fyrir þig hjá prentþjónustu – eins oft og þú vilt. Þú getur líka sótt skrárnar aftur síðar með því að skrá þig inn á vefnum. Pixel (Ármúla 1) býður viðskiptavinum Krot dagsins afslátt af prentun og römmum.

Hvernig eru vörurnar sendar?

Við sendum með Dropp. Þú getur sótt pöntunina á næstu Dropp-afhendingarstöð eða fengið hana senda heim. Sendingarkostnaður fer eftir afhendingarmáta og því hvort sent er innan eða utan höfuðborgarsvæðisins, og hann sést áður en þú greiðir. Það getur komið fyrir að við keyrum vörurnar sjálf út en gjaldið er það sama.

Hvenær fæ ég pöntunina?

Sendingar fara oftast í póst á miðvikudögum í gegnum Dropp og þú færð skilaboð frá Dropp þegar pöntunin er komin. Sé vara ekki til á lager höfum við samband og látum vita um áætlaðan afhendingartíma, eða endurgreiðum sé þess óskað. Stafrænar vörur koma strax í tölvupósti.

Sendið þið til útlanda?

Vörur eru aðeins sendar innanlands, með Dropp. Stafrænu vörurnar má kaupa hvaðan sem er, því þær koma í tölvupósti.

Hafið samband við helgavaldis@krotdagsins.is út af sendingum erlendis.

Hvað er sérpöntun?

Sumar vörur, til dæmis verk á striga, eru prentaðar sérstaklega fyrir þig og það tekur að minnsta kosti viku. Ef þú vilt aðra stærð er velkomið að hafa samband.

Koma veggspjöldin í ramma?

Veggspjöldin koma án ramma nema annað komi fram í lýsingu vörunnar. Stjörnumerkin koma til dæmis í sérsmíðuðum römmum frá Chicura, glampafríum og með UV-vörn svo myndin upplitist ekki í sólarljósi.

Á hvaða pappír eru verkin prentuð?

Verkin eru prentuð á hágæða mattan pappír. Pappír og stærð koma fram í lýsingu hverrar vöru.

Hvernig get ég greitt?

Hægt er að greiða með kredit- og debetkortum á öruggri greiðslusíðu. Krot dagsins tekur hvorki við né geymir kortaupplýsingar. Sendingarkostnaður bætist við áður en greitt er.

Get ég skilað vöru?

Já, það er 14 daga skilaréttur gegn sölureikningi. Varan þarf að vera ónotuð og í fullkomnu lagi. Ef þú vilt ekki skipta henni fyrir aðra vöru færðu inneignarnótu, kóða sem þú notar hér á síðunni. Sendingargjöld eru ekki endurgreidd og ekki er hægt að skila stafrænum veggspjöldum.

Hvað ef varan er gölluð?

Þá færðu nýja vöru í staðinn og við greiðum sendingarkostnaðinn, eða endurgreiðum sé þess óskað. Sendu okkur póst á helgavaldis@krotdagsins.is með upplýsingum um gallann.

Varan er uppseld – get ég fengið að vita þegar hún kemur aftur?

Já. Á síðu vörunnar getur þú skráð netfangið þitt og þú færð tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager.

Fást vörurnar annars staðar?

  • Stjörnumerkin eru samstarfsverkefni með Dimm verslun, Ármúla 44, og fást einnig þar.
  • Það verður að vera gaman, annars er svo leiðinlegt fæst hjá Dimm og Hrím.
  • Kirsuberjakortin og jólakortin fást hjá Epal og Dimm.
  • Stafaplakötin fást hjá Epal og Dimm.
  • Konurnar okkar fást hjá Dimm.

Hvernig fæ ég fréttir af nýjum vörum?

Skráðu þig á póstlistann neðst á síðunni og gerstu Krotvinur, eða fylgstu með á Instagram.

Hvernig hef ég samband?

Sendu okkur póst á helgavaldis@krotdagsins.is.